Kláraði loksins að hekla þennan kraga. Fór í hann ein dokka af smart garni. Keypti garnið í annað en ákvað að prófa að gera kraga. Fínt í kuldanum þessa dagana ;-) Hér er svo ein mynd að ört stækkandi bumbunni. 27 vikur rúmar komnar :-)
Þarf núna að halda áfram að læra. Er að læra að vera til í núinu. Ekki amalegt það :-)
En skondið, ég er að prófa að hekla álíka kraga, er þetta "waffle stitch"?
ReplyDeleteÁrný Hekla
Hehe já skondið :-)
ReplyDeleteEn ég veit ekkert hvað þetta heitir. Gerði bara einn stuðul og svo eina loftlykkju, aftur og aftur.
Flotter:) Líst best á að þú sért að læra að vera í núinu. Núið rokkar!
ReplyDeleteFlottur kraginn, fékk einmitt hugdettu í dag að gera mér kraga úr garni sem ég keypti í annað hehe
ReplyDeleteFlott bumban líka, fer þér vel að vera ólétt :)