Mikið eru svona hlutir skemmtilegir! Fór í dag á N1 og fékk mér góðan bunka af bréfum, skrifaði á þau öll, til fólks sem ég þekki. Ég er svo heppin að hafa fyrirmyndarfólk allt í kringum mig. Það verður gaman að skondrast út á pósthús á morgun með þetta. Þetta er svo krúttlegt. hehe
Tókuð þið þátt?
Annars þá er ég að fara að senda út fleira á næstu dögum til vinkvenna minna. Ég er frekar spennt fyrir því. Og hlakkar til að sýna ykkur hér líka :-)
Og já, ekki gleyma gleðigjöfinni hér fyrir neðan.
Ohh, nú fæ ég samviskubit. Er þvílíkt búin að hugsa hvað ég ætli eiginlega að skrifa og búin að semja nokkur góð bréf, en bara í huganum... Lata ég...
ReplyDeleteEn samt, knús á þig ;)