Saturday, April 23, 2011

Litla ljósið og teppið hennar :-)

Ég eignaðist þessa yndislegu stelpu þann 20. apríl. En ég gekk 10 daga framyfir og það þurfti gangsetningu til að fá hana til að koma út. Hún hafði það líka greinilega agalega gott í móðurkviði en hún var tæpar 19 merkur og 57,5 cm löng! :-)

Mig langar til þess að sýna ykkur teppið sem ég prjónaði fyrir hana. En þetta er bara garðaprjón og ég notaði kambgarn í það..

Hugmyndina fékk ég hér. Ég notaði prjóna nr 3,5 og fytjaði upp á ca 120 lykkjur. Það fóru um 6 dokkur í það.




Henni þykir sko ekkert slæmt að kúra með það.. :-)


12 comments:

  1. Æj hvað hún er sæt.. og teppið æði, flottir litir :)

    ReplyDelete
  2. Innilega til hamingju með litla ljósið ykkar. Hún er alveg yndisleg, og heppin að eiga svona handlagna mömmu.

    ReplyDelete
  3. Ji Dúdda mía hvað hún er falleg! Sver sig alveg í ættina ;)

    Og teppið er glæsilegt, frábærir litir :)

    ReplyDelete
  4. Innilega til hamingju! Ofboðslega sæt stelpa og teppið hennar líka rosalega fínt. :)

    ReplyDelete
  5. Þó mér finnsit teppið ofboðslega fallegt kemur það sko ekki með tærnar þar sem litla daman hefur hælana í fallegheitum. Bara yndisleg :)
    kv
    Magga

    ReplyDelete
  6. Innilega til hamingju með prinsessuna, yndisleg! Og flott teppið henner, fer henni vel :)

    ReplyDelete
  7. innilega til hamingju

    ReplyDelete
  8. Teppið er mjög flott en stelpan er bara til að bræða mann ;) Yndislega falleg! :)

    ReplyDelete
  9. Innilega til hamingju, mikið óskaplega er hún falleg! Yndisleg alveg hreint. Og engin smásmíði :)

    Teppið er rosalega flott hjá þér, gerðirðu eftir uppskrift eða bara uppúr þér? Mig langar að gera svona...

    ReplyDelete
  10. Takk stelpur :-)!

    En Sigurlaug. Ég bætti við f. ofan hvaðan hugmyndin kom og hvernig ég gerði ;-) Ætlaði að gera það um daginn en hefur tekist að klúðra því ;-)

    ReplyDelete
  11. Jórunn - Finnu og HafsteinsdóttirApril 26, 2011 at 10:06 AM

    Innilega til hamingju með "litlu" dömuna ;o) Yndisleg!

    Teppið er ofsalega flott og fallegir litir. Þarf ekki alltaf að vera flókinn prjónaskapur til að fá út fallegan hlut.

    Ps. þetta er æðisleg síða hjá ykkur systrunum ;o)

    ReplyDelete
  12. Til hamingju með litla fína engilinn! Hún er alveg obbolega falleg svona sofandi með þetta fína teppi. Knúúús á ykkur!

    ReplyDelete