Mamma er búin að vera að búa til þessi sætu veski utan um litlu hlutina sem er gott að hafa í veskinu en eiga það til að týnast. Mamma sér fyrir öllu :-) Mér finnst þau alveg ofur sæt hjá henni. Sjáiði bara:
Kortaveski:
Undir ömmu-spennur:
Undir tannstöngla:
Undir eyrnapinna:
Og svo uppáhaldið mitt. Litla veskið sem hún saumaði utan um I-podinn minn. Honum verður aldrei kalt :-)
Ó vei!!
ReplyDeleteMig langar í kortaveski...
Hmm, mamma? Pretty please? Ég ætla nú að hekla fígúru fyrir þig ;)
Æðislega flott veski, mér finnst kortaveskið algjör snilld! Mömmur eru náttúrulega alltaf bestar ;)
ReplyDeleteVá, ég þyrfti að eiga svona ömmuspennuveski. Ég er alltaf að týna mínum.
ReplyDeleteVá er mamma þín að selja þetta? ;) væri til í að kaupa 3-4 í mismunandi stærðum :)
ReplyDeleteKv Ösp