Þessi gella er alveg frekar sniðug. Hennar mottó fyrir árið snýst um 365 kjóla á 365 dögum fyrir í mesta lagi 365 dali. Henni tekst oftast mjög vel til og hér eru 3 dress sem mér finnst æði hjá henni!
Ég var auðvitað alveg heilluð þegar ég uppgötvaði þessa síðu og hef verið að leita í kringum mig af ódýrum fötum. Ég fann þennan jakka á 500 kall á nytjamarkaðinum á Selfossi. Ég þrengdi hann svolítið og á því nú fínan sumarjakka :-)
Vá, snilldarblogg!! Er búin að tapa klukkutíma í að skoða, og langar að kíkja í Kolaportið!
ReplyDelete