Wednesday, December 7, 2011

Jólagleðigjöf - Vinningshafi :-)

Öll nöfninKomin í pott



Hrista aðeins upp í þessu
Draga út 




Og þar stendur: Íris. Þær voru 2 í pottinum en það er þessi Íris sem vann. Til hamingju!
Eitt stykki hvítur garland er þinn! Vinsamlegast sendu mér heimilisfangið þitt á systraseidur@yahoo.com. Þá fer hann í póst á morgun :-)


Fyrir ykkur hinar þá getiði föndrað svona sjálfar:-) Það sem ég gerði var að ég fór í word og skrifaði hvern staf einu sinni (gleðijó) fann svo letur og stærð. Ég notaði helvetica og stærð 420. Algerlega uppáhaldsletrið þessa dagana! Klippti svo stafina út og strikaði eftir þeim á þykkt karton. Stafina límdi ég svo á borðann með límbandi með lími báðum megin. ég lokaði svo dæminu með að setja teip í sama lit aftan á þetta allt saman svo þetta tolli pottþétt.


Annars er ég alveg að verða klikkuð á öllu þessu föndri...

Er að hamast við að föndra nokkrar jólagjafir. Langar mest til að sýna ykkur en ætla að bíða með það þar til eftir jól. Næst fáiði samt að sjá skemmtilega jóladagatal söngfuglsins Erlu Marenar sem er súkkulaðigikkur mikill!

 Viljiði svo fá meiri jólainnblástur? Smelliði þá á like takkan hér að neðan eða skiljið eftir komment ;-)


4 comments:

  1. Meiri jólainnblástur, takk :)
    Alltaf gaman að skoða bloggið ykkar :)

    ReplyDelete
  2. Æðislegt!!!Takk kærlega :) er í skýjunum!!!

    Sendi heimilisfangið:)

    Ennogaftur takk fyrir mig =)

    ReplyDelete
  3. Þú ert allra yndislegust - það er bara þannig!

    ReplyDelete