Thursday, August 2, 2012

Tími breytinga


Það er aldeilis tími breytinga hjá okkur fjölskyldunni í Ólátagarði. En eftir ca. 2 vikur verðum við orðin fjölskyldan í Innstu Tungu. Það verður breyting!

Stelpurnar byrja á glæ nýjum og spennandi leikskóla.
Ég byrja í æsispennandi nýrri vinnu.
Þangað til þetta gerist á ég eftir að læra ótal margt, pakka alltof miklu af dóti niður. Ferðast landshluta á milli. Og sakna fjölskyldunnar alltof mikið! 

En Arilíus og Erla Maren hafa verið fyrir sunnan þessa viku. Ég og Ragna förum svo til þeirra á morgun. Ég skil þau svo öll eftir fyrir sunnan meðan ég kem vestur og undirbý næsta vetur.


 Ein góð af okkur sem elsku Eva Lind tók af okkur í Pollinum góða.

Kv. Dúdda <3

2 comments:

  1. Húrra fyrir breytingum!

    ReplyDelete
  2. núna er ég alveg ClueLess...hvar er aftur Tungan ?? ég á alveg að vita það ég veit :)

    ReplyDelete