Wednesday, December 1, 2010

Fyrsti desember

Húsbóndinn fékk sitt jóla dagatal. Þetta eru 24 miní-bréf, hengd á snúru út í glugga. Fann þessa rosa fínu klemmur í Tiger um daginn svo ég ákvað að smella í eitt svona dagatal.

Haldiði að það sé ekki dásamlegt að byrja daginn á að fá eins og eina ástarjátningu, hrós eða loforð í svona bréfi? Mér allavega sýndist það í morgun á mínum manni ;-)

Það sem ég þurfti var bréf, skæri, penni, band og klemmur.

Sýni ykkur svo einn sætan pakka sem ég pakkaði inn fyrir litlu jólin hjá vinkonunum.
Einfallt og gott.

.. og svo hlýt ég að fara að smella inn innpökkunarhugmyndunum ;-)

2 comments:

  1. Þetta er frábær hugmynd! Núna er ég að gera svona handa mínum manni en ég á pínu erfitt með að finna fyrir alla dagana :)
    Fann bloggið ykkar í dag, á eftir að koma reglulega hér inn.

    ReplyDelete
  2. Þetta er snilld :) Alli er svo heppin með konuna sína ;)

    ReplyDelete