Tuesday, March 1, 2011

Afmæliskort DIY

Elsku Magga vinkona mín á afmæli í dag.

Í gær föndraði ég svolítið öðruvísi kort fyrir hana.

Það sem ég notaði var:

pappír í nokkrum litum
band
skæri 
nál
umslag 
límband 
og lítil dúlla á endann.
Ég byrjaði á að klippa út form, ég gerði litlar veifur em hægt er að gera hvað sem er. Skrifaði svo skilaboðin á veifurnar, batt dúlluna á endann.
Límdi svo endann í botninn á umslaginu.
Hinn endann festi ég svo efst í umslagið
Kom þessu svo fyrir í umslaginu og lokaði


Svo voru skilaboðin dregin upp og vöktu mikla lukku :-)

Ég fékk hugmyndina hér

Þessi kanna/blómavasi fylgdi svo kortinu

2 comments:

  1. ohhh takk fyrir mig Dúdda dúlla ég held bara að þú sért mesta krútt í heimi :D

    ReplyDelete
  2. þetta er ekkert smá flott og eflaust mjög gaman að draga það upp úr umslaginu :Þ

    ReplyDelete