Wednesday, October 5, 2011

Afmælisdúkurinn

Ég keypti þessa risablúndugardínu í nytjamarkaðnum. Klippti hana til svo hún passaði á borðstofuborðið. Þurfti samt að klippa hana í sundur í miðjunni svo hún myndi passa sem best. Ákvað að nota litað bómullargarn til þess að sauma hana saman. Þegar ég var búin að því gat ég ekki hætt svo ég sótti fleiri liti og fór að þræða þá í. Til þess að fela endana heklaði ég svo smá hnappa sem ég saumaði í þar sem þáðurinn endaði. Ég er ekkert smá glöð með nýja dúkinn minn! Blúnduna fékk ég á 300 kr! Veeeel gert! haha. 

Nokkrar myndir af dýrðinni! :-)

Gardínan áður en hafist var handa.
Voða litlaus og tómleg greyið..

Þarna var ég búin að sauma saman með bláu og var byrjuð að leika mér með rauðan þráð :-)



Vúhú!!

3 comments:

  1. Dásamlegur dúkur hjá þér. Þú ert svo hugmyndarík og smekkleg, takk fyrir að deila, það er svo gaman að skoða það sem þið eruð að gera. Kv. Rósa á Bjargi

    ReplyDelete
  2. Ennþá fallegri séður með eigin augum! ;)

    ReplyDelete
  3. OMG! Hvað hann er nú fallegur! Geeeveikt! :o)

    ReplyDelete