Showing posts with label Project restyle. Show all posts
Showing posts with label Project restyle. Show all posts

Wednesday, October 5, 2011

Afmælisdúkurinn

Ég keypti þessa risablúndugardínu í nytjamarkaðnum. Klippti hana til svo hún passaði á borðstofuborðið. Þurfti samt að klippa hana í sundur í miðjunni svo hún myndi passa sem best. Ákvað að nota litað bómullargarn til þess að sauma hana saman. Þegar ég var búin að því gat ég ekki hætt svo ég sótti fleiri liti og fór að þræða þá í. Til þess að fela endana heklaði ég svo smá hnappa sem ég saumaði í þar sem þáðurinn endaði. Ég er ekkert smá glöð með nýja dúkinn minn! Blúnduna fékk ég á 300 kr! Veeeel gert! haha. 

Nokkrar myndir af dýrðinni! :-)

Gardínan áður en hafist var handa.
Voða litlaus og tómleg greyið..

Þarna var ég búin að sauma saman með bláu og var byrjuð að leika mér með rauðan þráð :-)



Vúhú!!

Friday, September 16, 2011

Project restyle - vika 37

Núna breytti ég gömlum hvítum leggings af mér í hárbönd á litlu Rögnu Evey.

Þetta er með bláu hekluðu blómi
Og þetta með gulum dúsk. Hægt að leika sér endalaust með þetta :-)

Mig grunar að þessi litla skvísa eigi eftir að eignast nokkur ný hárbönd á næstunni :-)

Þessi hárbönd eru mun þægilegri finnst mér heldur en þessi hefðbundnu sem eru keypt í búðum vegna þess að þau teygjast svo auðveldlega og eru þessvegna ekki eins þröng á höfðinu.

Friday, August 19, 2011

Project restyle - vika 33 - meiri fatalitun

Önnur flík úr nytjamarkaðnumFór sömu leið og blái kjóllinn - í stóra bláa pottinn.Ég var lengi að ákveða hvernig tölurnar ættu að vera - Tók eiginlega enga ákvörðun svo peysan fékk 5 mismunandi tölur.

Og litlan nýju peysunni :-)



Thursday, August 11, 2011

... Og kjóllinn blár! Project restyle - vika 32.

Ég er viss um að ekki finnist öllum sniðugt það sem ég var að gera núna haha. En sama er mér því ég er alsæl!

En ég fékk þennan krúttlega kjól í nytjamarkaðinum fyrir einhverja hundraðkalla.. Fannst hann samt eiginlega of sætur. 

Svo ég smellti honum í pott með bláum fatalit, krossaði putta 

Project restyle - vika 32. Það flottasta

Ég er svona að reyna að koma mér aftur í Project restyle gírinn ;-)


Hér er það sem mér þykir flottast frá því síðast. Flíkurnar eru búnar til úr karlmannsskyrtu, stórum ömmulegum kjól og síðasti úr gömlu sængurveri. Svo er ég auðvitað alltaf veik fyrir spreyjuðum stólum ;-)


Monday, August 1, 2011

Project restyle

Ég er nú ekki búin að standa mig í þessu verkefni.. Það einhvernveginn datt uppfyrir þegar fór að líða að því að fæða barnið og klára skólann! Hinsvegar er voða margt fínt sem birtist á flickrsíðu verkefnisins en eins er mjög mikið af forljótum verkefnum þar - það sem fólki dettur í hug!! ;-)

Nokkrar myndir af því sem mér þykir fínt:





Thursday, May 5, 2011

Litla, fína peysan. Fyrir og eftir

Passaði á ponsuna mína, er ekki viss um að hún fari oft í hana þar sem hún var í það minnsta fyrir nokkrum dögum. En mikið var hún fín í henni :-)

Ég tók hvítu tölurnar af og setti rauðar hjarta-tölur í staðinn :-)

Saturday, April 16, 2011

Project restyle - vika 14 og 15

Ég er ekki alveg búin að standa mig í þessu undanfarnar 2 vikur, enda nóg að gera í sambandi við það að klára skólann. Ætla samt að skella inn myndum af því sem mér hefur þótt flottast.