Showing posts with label innblástur. Show all posts
Showing posts with label innblástur. Show all posts

Saturday, March 10, 2012

Laugardagsföndurstund

Gott að byrja laugardaginn á því að kíkja í DIY albúmið sitt  á Pinterest og ákveða þar hvað föndra eigi í dag. 
Hvernig væri að safna öllum dýrum heimilisins saman og raða þeim upp á hillu. Njóta sín betur þar en ofan í dótakassa
Örugglega lítið mál að föndra svona lista til að hengja upp á vegg 
Líma tréstafi á striga og mála. Hægt að leika sér með það :-)
Spreyja kökuform og skella blómum í 

Gleðilegan föndurdag!

Saturday, February 25, 2012

Nýtt útlit og ný facebook síða


Loksins fengum við okkur nýtt útlit! Vúhú! Ég notaði síðuna pixlr til þess að gera nýja hausinn. Hvernig líst ykkur á? :-)

Árný bjó svo til nýja facebook síðu fyrir okkur. Vegna þess að við vorum hættar að komast inn á hina. Þið getið fundið nýju síðuna hér og líka hérna hægra megin Sniðugt að smella like á hana og fá nýjar færslur beint í æð ;-) 

Fáum smá innblástur af því það er svona fallegur mánudagur í dag! :-)



Knús á ykkur öll!

Wednesday, February 8, 2012

Sauma sauma!

Elskulega saumavélin er mætt í hús!





Koddar af öllum stærðum og gerðum. En ég keypti einmitt þetta röndótta efni í Ikea um helgina, held reyndar að ég muni sauma pils eða kjól úr því.






Ég þorði ekki að setja hér inn stelpukjóla því það er ekki öruggt að ég hefði getað hamið mig! Meira um það seinna. Fer svo að reyna að setja inn hugmyndir að öskudagsbúingum :-)

Tuesday, January 31, 2012

Innnnblástur

Væri ekki ráð að smella í eitt svona bindi fyrir manninn sinn?
Hvernig væri að smella í eina svona skál í dag?
Hvað er þetta mikil snilld!
Myndir af fallegum barnaherbergjum með svona gamaldagsrúmum hvetja mig til þess að koma rúminu sem stendur út í bílskúr í stand. Það strandar þó á því að mig vantar smá aðstoð með það...
Nú getur maður gefið einhverjum effelturninn

Tuesday, January 10, 2012

Nú styttist í að ég fái mér saumavél! Ég er á milljón að safna mér innblástri fyrir stelpuföt. Hér eru nokkrar flíkur sem ég er að elska þessa mínúturnar :-)

Hægt að leika sér með form og liti! Mig langar líka í svona fyrir mig!
Ó mæ hvað litla fuglastelpan mín væri fín í svona!