Showing posts with label saumað. Show all posts
Showing posts with label saumað. Show all posts

Thursday, June 14, 2012

Lítill svartur kjóll

Það er góð hugmynd að taka upp snið af flík sem manni þykir vænt um og fílar vel. Ég er t.d. lengi búin að eiga kjólinn á myndinni til vinstri. Ég var hins vegar með allt öðruvísi efni til að vinna með en ákvað að sníða efri hlutann á nýja kjólnum eftir hinum en láta hann svo vera lausari að neðan.

Og það besta er að þessi kjóll var einu sinni virkilega víðar og fyndnar buxur sem ég fann hjá mömmu. Hann var því ekki dýr í framkvæmd. Keypti bara tvinna og silki-skábandið sem ég setti í hálsmálið og svo neðst á hann. Við erum að tala um nokkra hundraðkalla skiljiði :-)

Mér finnst hann æði eins og ég notaði hann í gær svona alveg lausan eeen hann býður  upp á svo marga  spennandi möguleika.

Við Sigríður systir lékum okkur útí garði í gær


Ég smellti mér í þessar litlu hvítu ermar og skóna fínu frá því ég gifti mig. Aldeilis sem kjóllinn var fínn svona. Rómó fílingur í þessu















                                                                                                                                                              
Svo þægilegur til að hnoðast með litlu skotturnar :-)




Skora á ykkur allar að finna ykkur efni sem má alveg skemmast og prófa bara. Þetta er svo gaman! :-)
<3 Dúdda

Tuesday, May 22, 2012

Lazy days pils



Ég saumaði um helgina lazy days pils fyrir Erlu Maren. 

Bútur af eldgömlu og ó svo mjúku sængurveri, skáband, teygja og tvinni - 30 mínútur og Emí orðin einu pilsi ríkari!



Ég við Erlu: ,,Má ég nú taka mynd af þér í nýja pilsinu?"
Erla: ,,Já!"

Svo gerist þetta....






Þessar myndir saman gefa ágætis mynd af pilsinu en þið sjáið kannski vinnuna sem fer í að ná myndum af  3ja ára orkubolta ;-)


Hér má svo sjá í pilsið í axjón, frá því þegar við mæðgur skelltum okkur í fjöruferð.



 Hér er svo pils sem ég gerði á sama hátt þegar Erla var ponsa :-)

Monday, April 16, 2012

Annar léttur blúndu kjóll

Í þetta sinn hafði ég hann styttri og svolítið þrengri. Ótrúlega fínt yfir samfellu og sokkabuxur og ef maður á sætar bleyju-buxur þá er það bara til að setja punktinn yfir i-ið.





Við ætlum að njóta góða veðursins í dag hér á Tálknafirði. Algerlega kominn tími til útiveru eftir alltof langt veikindatímabil hjá okkur.


Tuesday, March 20, 2012

Blúndukjóll fyrir blúndubínu



Hin dásamlega Ragna Evey er 11 mánaða í dag. Það var aldeilis kominn tími til þess að hún eignaðist sinn blúndukjól :-) Ég sneið hann eftir kjól sem hún á og ákvað svo að falda hann ekki. Hann er þessvegna alveg rosa léttur og krúttlegur. Það verður svo spennandi að sjá hvort blúndan rakni öll upp.. ;-) 

<3 Vona að þið eigið góðan dag <3

Sunday, March 18, 2012

Föt - á hana

Það er alveg hægt að gleyma sér við að skoða barnaföt... Hér eru nokkrar flíkur sem vöktu athygli mína


aðeins of sætar leggings

ætli það sé erfitt að sauma svona..?


flottur og kósý kjóll

Ermar af skyrtu notaðar í buxur...

Ég fíla þennan líka, kósý og afslappað...

Tuesday, March 13, 2012

Laugardagsföndrið - Pils

Hér koma nokkrar vel hristar og hrærðar myndir. Ákvað samt að deila þeim með ykkur þar sem pilsið sem er í aðalhlutverkinu er svo asskoti sætt!

Við mæðgur saumuðum semsagt eitt stykki pils á Laugardaginn en efnið sem við notuðum var bútur sem hafði verið klippt af pilsi sem mamma stytti fyrir Sigríði. Ótrúlega sniðugt að nota það í pils á lítið stelpuskott finnst mér :-)

Svona lá rófunni mikið á að fá nýja pilsið - hún var barasta komin í verkið sjálf..

Mikið kát með fína pilsið :-)


:-)

Wednesday, February 22, 2012

EMí ofurhetja!

Jiiii hvað það var skemmtilegt að gera þennan búning og Erla Maren alveg alsæl! Í búninginn notuðum við bara hluti sem til voru á heimilinu, leggings og skór sem hún á, Búningurinn sjálfur saumaður úr gömlum síðermabol, skykkjan er svo blúnduefni, hjörtun sem eru saumuð á hana og er í beltinu eru klippt úr gömlum bol sem ég var hætt að nota. Og elsku elsku saumavélin sá um stuðið!

Fullt af myndum því hún er svo sæt að það er eiginlega ekki hægt að hemja sig!





Tuesday, February 14, 2012

Ofurhetjur!

Í ágúst í fyrra saumaði ég skikkju fyrir soninn. Hann var alveg Batman sjúkur og því hafði ég loksins not fyrir hræðilega ljót svört sængurföt sem höfðu legið inn í saumaskáp.
Þar sem hann var að springa úr spennu lá hann nánast á bakinu á mér allan tímann og fylgdist með öllu ferlinu. Saumaskapurinn var ekki beinlínis fallegur en það skipti engu, drengurinn var alsæll!


Svo á laugardaginn varð dóttirin eitthvað svo leið yfir því að hún ætti enga skykkju svo ég leyfði henni að velja sér efni úr skápnum. Hún valdi blátt flís og ég notaði rauðan borða sem band.

Núna á ég tvær ofurhetjur! :)





Saturday, June 18, 2011

Útskriftardressið ;-).

Mamma mín var svo góð að gefa mér blúndu og hjálpa mér að sníða og sauma úr henni kjólÁrný systir reddaði svo fatalit

Og blúndan varð svona skemmtilega appelsínugul
...Liturinn fór svo reyndar nánast allur úr þegar blúndan var skoluð en varð svona laxableik..


Ég saumaði svo blátt skáband á kjólinn og þetta var útkoman

Ooog svo útskriftarsysturnar saman :-)